Nýtt lag af væntanlegri plötu Contalgensins

Nýverið gaf Contalgen Funeral út lagið Not Dead Yet sem fyrirrennara fyrir væntanlega plötu sem mun bera nafnið Pretty Red Dress og verður fáanleg í lok mánaðarins. Lagið er nú komið í spilun á Rás 2 og má velja það inná Vinsældarlista Rásar 2.

Gísli Þór Ólafsson hinn geðþekki bassaleikari hljómsveitarinnar segir að næst á dagskrá hjá bandinu er Bræðslan á Borgarfirði eystra, seinustu helgina í júlí.

Hægt er að heyra hið stórgóða lag Not Dead Yet HÉR.

Fleiri fréttir