Nýtt skipurit Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Þann 19. júlí sl. var samþykkt nýtt skipurit Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem tók gildi 1. september sl. Byggðarráðið samþykkti í umboði sveitarstjórnar að fara í hagræðingaraðgerðir og stjórnskipulagsbreytingar sem kynntar hafa verið. Bæði er um almennar aðgerðir að ræða sem og breytingar á skipuriti sveitarfélagsins. Íbúafundir í næstu viku.
Á vef sveitarfélagsins segir að sveitarstjórn hafi staðið einhuga saman að því að ráðast í umfangsmiklar skipulagsbreytingar og hagræðingaraðgerðir, sem felast meðal annars í því að sviðum er fækkað úr sjö í þrjú, en þau verða fjármála- og stjórnsýslusvið, veitu- og framkvæmdasvið og fjölskyldusvið. Engum starfsmanni hefur verið sagt upp vegna skipulagsbreytinganna, segir á vefnum.
Sveitarfélagið hefur átt við mikinn rekstrarvanda að etja undanfarin ár og ljóst að grípa þyrfti til umfangsmikilla sparnaðaraðgerða umfram það sem þegar hafði verið gert. Kappkostað er að láta það ekki koma niður á þeirri þjónustu sem sveitarfélagið hefur veitt og komast hjá uppsögnum starfsfólks.
Rekstrarformi Skagafjarðarveitna ehf. verður breytt og verður starfsemin rekin með sama hætti og aðrar B-hluta stofnanir sveitarfélagsins frá og með næstu áramótum. Sameining verður á Skagafjarðarveitum, þjónustumiðstöð (áhaldahúsi) og eignasjóði. Einnig mun markaðs- og þróunarsvið verða sameinað fjármála-og stjórnsýslusviði.
Atvinnu- og ferðamálanefnd og menningar-og kynningarnefnd verða sameinaðar í eina nefnd en breyting á nefndaskipan getur ekki tekið gildi fyrr en breytingar á samþykktum sveitarfélagsins hafa verið samþykktar.
Íbúafundir verða haldnir í næstu viku þar sem Haraldur Líndal mun fara yfir rekstrarúttekt sem hann vann fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð og verða fundirnir á eftirfarandi stöðum:
Mánudaginn 10. september kl 20:00 í Safnahúsinu Sauðárkróki
Þriðjudaginn 11. september kl 15:00 Ketilási Fljótum, kl 18:00 Grunnskólanum Hólum og kl 20:30 Miðgarði í Varmahlíð.
Miðvikudaginn 12. september kl 20:00 Grunnskólanum Hofsósi