Nýtt starfsár Heimis að hefjast
Starfsárið hjá karlakórnum Heimi í Skagafirði fer senn að hefjast en búið er að boða til fyrstu æfingar mánudagskvöldið 15. október næstkomandi. Kórfélagar hafa verið beðnir um að hefja undirbúning nú þegar, bæði andlegan og líkamlegan, t.d. með hæfilegum ræskingum, þindaræfingum og þjálfun kjálkavöðva.
Á heimasíðu kórsins segir að framundan sé undirbúningur fyrir hina árlegu þrettándatónleika, en um fyrirkomulag þeirra verður fjallað síðar. Því er þó ljóstrað upp að enginn ætti að verða svikinn af því sem þar verður fram reitt. Árshátíð kórsins verður haldin í haust, og er ráðgert að hún verði með veglegra móti, enda eru um þessar mundir liðin 85 ár frá stofnun kórsins.