Oddur Benediktsson nýr þjálfari körfuknattleiksdeildar

Oddur Benediktsson, 23 ára Hvergerðingur, hefur verið ráðinn yngriflokkaþjálfari hjá Tindastóli næsta tímabil. Oddur er ungur og upprennandi þjálfari sem mun verða í miklu starfi hjá körfuknattleiksdeildinni, segir á heimasíðu Tindastóls.

Oddur mun verða aðalþjálfari 8. 9. og 10. flokks drengja, sem allir taka þátt í Íslandsmótinu en honum til aðstoðar verður Karl Jónsson.  Auk þessa mun Oddur þjálfa míkróboltann og einhverja minniboltaflokka.

Með ráðningu Odds verður hægt að nýta betur æfingatíma fyrr á daginn en áður hefur verið og mun það létta á æfingatímum seinni part dags.

Oddur hefur síðustu árin þjálfað á Suðurlandi, hjá Laugdælum, Hrunamönnum og Hamri og hefur smám saman verið að afla sér reynslu og þekkingar og verið duglegur við að sækja námskeið og aðra möguleika á menntun.

Skrifað var undir samning við Odd fyrir helgina og á myndinni má sjá þá Eirík Loftsson formann unglingaráðs og Odd, handsala samninginn. Oddur mun hefja störf þann 1. september nk.

Fleiri fréttir