Ofið í Auðunarstofu
Á morgun föstudaginn 10. ágúst hefst dagskrá Hólahátíðar með fyrirlestri Ragnheiðar Þórsdóttur vefara, í Auðunarstofu kl. 20:00. Þar mun hún fjalla um miðaldavefnað og hvernig ofið var við kljásteinsvefstað (kljásteinsvefstól) sem þar hefur verið settur upp á vegum Byggðasafns Skagfirðinga og Fornverkaskólans. Eftir hádegi laugardaginn 11. ágúst mun hún sýna hvernig röggvarfeldur var ofinn.
Á heimasíðu Byggðasafns Skagfirðinga segir að smíði vefstólsins sem var á vegum Byggðasafnsins og Fornverkaskólans og vefnaðurinn sé afurð samstarfs þeirra við Safnamiðstöð Hörðalands í Noregi.
Þessi gerð vefstóls er kennd við kljásteinana sem halda vefnum niðri en á þeim eru göt sem uppistöðuþræðirnir eru festir í. Vefstólar af þessari gerð hurfu fyrir hraðskyttuvefstólum á 19. öld.
Við vefnaðinn og smíðina eru notuð sömu handbrögð og áhöld eins og á Sturlungaöld þegar Guðmundur góði, biskup á Hólum (1203-1237) átti í útistöðum við Kolbeinn Tumason höfðingja Ásbirninga og fleiri.