Ókunnugt sjávardýr í Sauðárkróksfjöru

Það er ýmislegt sem rekur upp á fjörur landsins eins og allir vita og margt forvitnilegt. Kona ein á Sauðárkróki fékk sér göngutúr í fjörunni og fann skrítið kvikindi sem hún kannaðist ekki við. Var það tekið með heim og reynt að finna út hvað þarna var á ferðinni.

Neðri hlið dullafulla sjávardýrsins.

Haft var samband við Náttúrustofu og þar er verið að leita að einhverri samsvörun við dýrafræðina og líklega verður kvikindið krufið til að komast að hinu sanna. Ef einhver hefur séð eða veit hvað er hér á ferðinni mætti gjarna láta vita.

Fleiri fréttir