Öllum Skagfirðingum boðið á 80 ára afmælisfögnuð hjá Skagfirðingafélaginu í Reykjavík - frítt inn

"Við eigum afmæli og þér er boðið" segir í tilkynningu frá Skagfirðingafélaginu í Reykjavík. 

Skagfirðingafélagið í Reykjavík ætlar að fagna 80 ára afmæli félagsins laugardaginn 7. október í samkomusal Ferðafélags Íslands að Mörkinni 6 í Reykjavík. Stjórn félagsins langaði að minnast þessara merku tímamóta með eftirminnilegum hætti og því var ákveðið að gefa út afmælisdisk með 10 glænýjum skagfirskum dægurlagaperlum. Auglýst var eftir lögum og barst þeim fjöldinn allur af fallegum dægurperlum og vilja þau nota tækifærið og þakka öllum þeim sem sendu inn lög kærlega fyrir. 10 lög voru valin á afmælisdiskinn af sérstakri dómnefnd og eru þau ákaflega sátt við útkomuna. Diskurinn hefur hlotið nafnið Kveðja heim og verður til sölu í afmælisveislunni. Jafnframt verða afmælislögin frumflutt þar og því um að gera að koma og næla sér í diskinn.

Dagskrá kvöldsins; 
Húsið opnar kl 19
Dagskrá hefst kl 20
Kynnir kvöldsins er Valgerður Erlingsdóttir
Afmælislögin frumflutt
Söngvararnir
Ása Svanhildur Ægisdót
Birgir Björnsson
Ester Indriðadóttir
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
Hreindís Ylva
Hugrún Sif
Magni Ásgeirsson
Sigvaldi Helgi og
Veronika Heba flytja afmælislögin okkar.

Höfundar kvöldsins
Anna Jóna Guðmundsdóttir
Erla Gígja Þorvaldsdóttir
Geirmundur Valtýsson
Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson
Guðmundur Ragnarsson
Haraldur Smári Haraldsson
Sigfús Arnar Benediktsson
Snorri Evertsson
Smári Eiríksson
Veronika Heba .

Skemmtiatriði frá tónleikunum
Danslagakeppnin í 60 ár
Sigvaldi Helgi og Reynir leika og syngja fyrir okkur eftir að lögin 10 hafa verið flutt.

Ath
Það kostar ekkert inn en við verðum með bar á staðnum þar sem ýmsir drykkir verða til sölu .

Feykir hvetur alla til að mæta, sýna sig og sjá aðra, og ekki síst að gleðjast yfir því að vera stoltur Skagfirðingur. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir