Ölvun og frisbí vafasöm blanda

Hljómsveitin Sing for me Sandra ætlar að spila á Tónlistarhátíðinni Gærunni í kvöld hlakka til að spila á mesta og skemmtilegasta partýi sem þeir hafa verið í. Feykir heyrði hljóðið í strákunum og hitar upp fyrir kvöldið.

Hvenær var hljómsveitin stofnuð og hvað heita hljómsveitarmeðlimir?

Hljómsveitin var í raun stofnuð árið 2006, en við miðum yfirleitt við árið 2009 þegar við byrjuðum fyrst að gera eitthvað fyrir alvöru - taka upp lög, spila á tónleikum og fá útvarpsspilun - fram að því veit enginn hvað átti sér stað. Meðlimirnir eru þeir sömu og hafa verið frá byrjun, þ.e. Helgi Einarsson á trommur, Ragnar Már Jónsson á gítar og síðan söngvararnir þrír Jón Helgi Hólmgeirsson+gítar, Þorkell Helgi Sigfússon+gítar og Örn Ýmir Arason+bassi.

Hvernig mynduð þið lýsa tónlist ykkar?

Hún tekur endalausum breytingum en ætli það mætti ekki flokka þetta undir einhverskonar indie rokk nákvæmlega þessa stundina.

Hefur einhvern tímann eitthvað skondið átt sér stað á tónleikum hjá ykkur?

Úff... já, allskonar. Rafmagnið farið af nokkrum sinnum, fullt fólk dettandi upp á svið og hellandi bjór yfir allt, strengir slitnað og magnarar sprungið - kannski frekar einhver sorgarsaga heldur en að þetta sé skondið - þetta band hefur gengið í gegnum endalausar hrakfarir... Liðsmenn komu til að mynda misvel út úr Gæruhátíðinni 2010 þar sem gítarleikarinn okkar var að príla á eftir frisbí sem hafði fest upp í tré (jebb, menn spila frisbí á gærunni). Í ölvun sinni í rigningunni þar sem hann stóð uppi á háu sleipu grindverki, rann hann til og datt af grindverkinu á annað grindverk og stórslasaði sig á bakinu sem gerði bílferðina heim í þynnkunni lítið ánægjulega þar sem hann gat ekki setið þannig að bakið snerti neitt - það getur verið erfitt í bíl.

Hvernig leggst í ykkur að spila á Gærunni 2012?

Bara virkilega vel! Við spiluðum á fyrstu gærunni fyrir tveimur árum sem var ábyggilega mesta og skemmtilegasta partý sem nokkur okkar hefur tekið þátt í, vorum beðnir að koma í fyrra en komumst því miður ekki svo auðvitað hlökkum við til núna og höfum gríðarlega miklar væntingar í þokkabót. Mér skilst líka að Gæran hafi farið stigvaxandi síðan við spiluðum síðast svo að væntingarnar eru gríðarlegar! Sauðárkrókur er eini staðurinn sem Sandran hefur spilað utan höfuðborgarsvæðisins og því er þetta hátíð sem við höfum miklar mætur á.

Hvað er á döfinni?

Við erum að byrja upptökur á akústískri plötu, en við ætlum einmitt að bruna í bæinn á sunnudaginn til þess að spila á Melodica acoustic festival á Rósenberg. Síðan erum við að vinna að nýju efni og stefnum á nýja plötu á næsta ári. Í bland við það eru meðlimir í skólum, í tilvistarkreppum og einfaldlega að reyna að finna sig í lífinu.

Eitthvað að lokum?

Við bara væntum þess að sjá sem flesta á gærunni því við getum lofað því að þetta verður endalaus gleði - ölvun og frisbí diskar geta aftur á móti verið vafasöm blanda.

http://www.youtube.com/watch?v=Ob-IDH_cQpk

 

Fleiri fréttir