Opið fyrir umsóknir í Vinnuskóla og V.I.T.

Við opnun Atvinnulífssýningarinnar á Sauðárkróki um síðustu helgi var formlega opnað fyrir umsóknir í Vinnuskólann og V.I.T. ( atvinnuátak 16-18 ára ) á heimasíðu Sveitarfélagsins.  Frístundasvið var  með sýningabás ásamt Fræðslusviði og var fulltrúi frá Vinnuskóla og V.I.T. þar til aðstoðar. 

Fram hefur komið að þeir sem sækja um fyrir 4. maí komast í lukkupott sem dregið verður úr heppinn vinningshafa  í byrjun sumars.  Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimsíðu Svf. Skagafjarðar.

Fleiri fréttir