Opið hestaíþróttamót (UMSS) í Skagafirði 5. - 6. maí
Skráning er hafin í opið hestaíþróttamót (UMSS) sem haldið verður á Sauðárkróki 5. - 6. maí. Keppt verður í hefðbundnum hestaíþróttagreinum ásamt létttölti T7 (hægt, snúa við, svo frjáls ferð) og léttfjórgangi V5 (beðið um frjálsa ferð á tölti, hitt er eins) ef næg þátttaka fæst.Fjórgangur V1, tölt T1 og T2 og fimmgangur F1- fullorðnir - einn inná í einu.
Fjórgangur V2, tölt T3, fimmgangur F2 - yngra flokkar - 2-3 inná í einu.
Við skráningu þarf að gefa upp:
nafn og kennitölu knapa
nafn og fæðingarnúmer hests (IS)
keppnisgrein
uppá hvaða hönd keppandinn vill ríða (ekki fullorðnir)
Senda þarf skráningu á fritz@mi.is fyrir fimmtudaginn 3. maí kl 21.00.
Skráningargjald er 4.000 kr. fyrir fyrstu skráningu en 1.000 kr. á næstu skráningar hjá sama knapa. Leggja skal inn á reikning UMSS: 310 - 26 - 1997 Kt: 670269-0359 MUNA- skýring: nafn á hesti.
Þá verða haldin tvö mót sunnudaginn 3. júní og föstudagur 8. júní.
OPIÐ Forkeppnismót - sunnudaginn 3. júní - bara forkeppni
Greinar:
- 5 gangur (F1)
- Tölt (T1)
- gæðingaskeið
- skeiðkappreiðar, 150m. og 250m.
- 100 m skeið
OPIÐ Kvöldmót - föstudagur 8. júní - bara forkeppni
Greinar:
- 4 gangur (V1)
- Slakataumatölt (T2)
- skeiðkappreiðar 150m. og 250m.
- 100 m skeið
Mótin eru öll (3) viðurkennt sem punktamót fyrir Íslandsmót og T1 á LM.