Opið hús á Varmalandi í Sæmundarhlíð
Opið hús verður á Varmalandi í Sæmundarhlíð föstudaginn 28. september frá kl. 13-18. Til sýnis og sölu eru hross á ýmsum aldri tamin og ótamin. Kynnt verður vatnsgöngubretti fyrir hross sem sett hefur verið upp á bænum.
Fjölskyldan Varmalandi býður alla velkomna. Boðið verður upp á kaffi og kleinur.