Opið hús hjá Gæðingi

Um helgina var opinn dagur hjá brugghúsi Gæðings í Útvík í Skagafirði þar sem gestir gátu skoðað sig um og fengið upplýsingar um bruggunaraðferðir og bjórgerðir. Einnig var hægt að smakka á framleiðslunni sem óðum fer fjölgandi.

Ný tegund Gæðings Tumi humall var kynntur til sögunnar en hann er enn á tilraunastigi og fékk hann góða dóma þeirra er smökkuðu. Voru gestir sammála um ágæti framleiðslunnar en nokkuð misjafnt hver uppáhaldsbjórinn væri.

Opið var bæði föstudag og laugardag og sögðu húsráðendur að vel hafi verið mætt báða dagana en heldur fleiri hafi látið sjá sig á laugardeginum.

Fleiri fréttir