Opna augu fólks um aðgengi fatlaðra

Félag Sjálfsbjargar í Skagafirði stendur fyrir málstofu um bætt aðgengi fatlaðs fólks að opinberum stofnunum og öðrum byggingum í Húsi frítímans í dag. Þar mun Harpa Ingólfsdóttir, ferlihönnuður hjá Aðgengi ehf., taka til máls og ætlar að fjalla um hvernig málin hafa þróast í ljósi sáttmála Sameinu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og nýju mannvirkjalögin.

Ný byggingarreglugerð var tekin í gagnið í janúar sl. og í henni er m.a. kveðið á um að aðgengi fatlaðra skuli vera tryggt. „Við erum loksins komin með tæki í hendurnar til að tryggja þessi grundvallarmannréttindi  fatlaðra og kemur það til með að hjálpa okkur við að framfylgja þeim,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Sjálfsbjargar í Skagafirði.

Þuríður Harpa segir mikla óánægju hafi mátt greina á fundum hjá hagsmunafélögum fatlaðs fólks þegar aðgengismál komu til umræðu og hvernig hefur verið tekið á þeim málaflokki fram til þessa. Hún tekur sem dæmi að enn sé verið að byggja nýjar opinberar byggingar þar sem ekki er gert ráð fyrir að fólk komist þar um á hjólastól.

Í reglugerðinni kemur fram að ef aðgengi fatlaðs fólks sé ekki viðunandi á viðkomandi stað er nú hægt að beita viðurlögum. „Það virðist ekkert taka breytingum í þessum efnum nema að beitt séu viðurlög og þar kemur nýja reglugerðin til sögunnar,“ segir hún og bætir við að nýja reglugerðin hafa tekið ótrúlegum breytingum frá þeirri síðustu. „Það er náttúrulega farsælast fyrir alla að komast hjá þeim leiðindum og að farið sé rétt að frá upphafi.“

Harpa Ingólfsdóttir hefur verið að taka út einstök mannvirki á vegum sveitarfélaga með tilliti til aðgengis, fyrir hönd Aðgengis ehf. „Hún getur auðveldlega bent á hvað megi betur fara og fólk getur kynnt sér það á málstofunni sem fer fram kl. 16 í dag,“ segir Þuríður Harpa.

Við mælumst til þess að þeir sem eru í sveitarstjórn og í þjónustugeiranum, sem og aðrir framkvæmdaraðilar, láti sjá sig á málstofunni. Svo eru auðvitað allir sem hafa áhuga á að kynna sér málið velkomnir,“ segir Þuríður Harpa.

Hér má skoða heimasíðu Aðgengis ehf. eða Access Iceland.

Fleiri fréttir