Opnunarpartý á Micro Bar í kvöld

Gæðingur brugghús hefur opnað Micro Bar við Austurstræti 6 í Reykjavík en opnunarteitið fer fram í kvöld frá kl. 17 – 23. Eitt sem við getum lofað ykkur er að bjór frá Vífilfelli og Ölgerðinni munu ekki rata á okkar dælur,“ segir á facebook-síðu Micro Bar en opnun barsins má segja að séu viðbrögð við einokun fyrrgreindra ölgerða á krám og veitingastöðum landsins.

Á Micro Bar verður m.a. boðið upp á kranabjór frá íslenskum örbrugghúsunum; Gæðingi, bruggverksmiðjunni Kalda á Árskógsströnd og Ölvisholti brugghúsi í Flóahreppi.

Í opnunarpartýinu stendur til að gefa kút af hinum nýja Micro bjór, bruggaður af tilefni opnun hins nýja bars.

Heimild: facebook.com/MicroBarIceland

Fleiri fréttir