Óskasteinn og Dívurnar fengu flest atkvæði á Tekið til kostanna
Stórsýningin Tekið til kostanna fór fram fyrir fullu húsi í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki á laugardagskvöldið. Dómnefnd kaus glæsilegasta hest sýningarinnar og besta atriðið og að sögn Eyþórs Einarssonar sýningarstjóra sýnir það best hve sterkur hestakosturinn var að atkvæðin um glæsilegasta hestinn dreifðust á nokkra hesta.
Óskasteinn frá Íbishóli varð þó hlutskarpastur, en Magnús Bragi átti stórleik á þessum mikla gæðingi sínum, uppáklæddur í kjólföt með pípuhatt. Aðrir hestar sem atkvæði hlutu voru Óskar frá Blesastöðum (k: Artimisia Bertus), Þöll frá Heiði (k: Sigurður Óli Kristinsson), Vafi frá Ysta-Mói (k: Magnús Bragi Magnússon), Trymbill frá Stóra-Ási (k: Gísli Gíslason), Andri frá Vatnsleysu (k: Egill Þórarinsson) og Seiður frá Flugumýri (k: Mette Mannseth). Þar sem hver dómari mátti aðeins nefna einn hest er alveg ljóst að hér er ekki um að ræða tæmandi lista yfir þá glæsigripi sem geystust um höllina.
Dívurnar úr Vestur-Húnavatnssýslu unnu síðan afgerandi í atkvæðagreiðslu um besta atriði en Vatnsleysa og Fás-Fákar fengu sitt hvort atkvæðið. Óhætt er að segja að atriðið hjá Dívunum var að frábærlega útfært, kraftmikið, skemmtilegt, hnökralaust og búningarnir tilkomumiklir.
Úrslit í skeiðkappreiðum urðu þau að Hans Þór Hilmarsson ásamt þöll frá Hólum sigruðu á frábærum tíma eða 4,83 sek., Jóhann Magnússon og Hvirfill frá Bessastöðum voru í öðru sæti (5,10) og í þriðja sæti Sveinbjörn Hjörleifsson og Drífa-Drottning (5,14).
Í verðlaunafé fyrir hvert atrið var 25.000 kr. sem var í boði Bændaþjónustunnar í Saurbæ, Videosport/Mælifell og Orkunnar/Bláfells.
Leynigestur kvöldsins var Seiður frá Flugumýri sem þeystist um höllina í eltiljósi ásamt Mette Mannseth, svart klæddri þannig að hvergi sást í hið ljósa man íklædd skikkju.
Allir þeir sem komu að þátttöku í sýningunni; sýnendur, starfsfólk, hesthúseigendur á Króknum og styrktaraðilar fá bestu þakkir fyrir samhent átak, jákvæðni og dugnað sem er jú lykillinn að því að láta slíkar sýningar heppnast. Sérstakar þakkir fá gestirnir sem komnir voru lengst að, þau Sigurður Óli Kristinsson og Artimisia Bertus, segir Eyþór.