Ótryggt GSM símasamband á Skaga

GSM samband á Skaga er í miklum ólestri og víða næst ekkert samband. Slíkt ástand er ógn við öryggi fólks sem býr á svæðinu og þeirra sem eiga leið um það bæði á sjó og landi. Gera þarf hið fyrsta gangskör í að koma GSM símasambandi á Skaga í viðunandi horf, samkvæmt Almannavarnarnefnd Húnavatnssýslna. Húni.is greinir frá þessu.

Samþykkt var á fundi Almannavarnarnefndar Húnavatnssýslna miðvikudaginn 28. nóvember síðastliðinn að erindi yrði sent til Póst- og fjarskiptastofnunar þar sem krafist verði að GSM samband verði tryggt á Skaga.

„Í erindinu kemur fram beiðni um að gerð verði hið fyrsta gangskör í að koma GSM símasambandi á Skaga í viðunandi horf til öryggis og hagsbóta fyrir íbúa og vegfarendur um og fyrir Skaga,“ segir í frétt Húna.is.

Fleiri fréttir