Pabbi er dáinn á morgun

Á morgun miðvikudag verður sýndur í Húsi frítímans á Sauðárkróki einleikurinn Pabbi er dáinn eftir hinn íslenska Sir Daily Snow en hann fer einnig með aðalhlutverkið. Um er að ræða 30 mínútna einleik sem fjallar um hinn 26 ára gamla Kára sem vitjar leiði föður síns eftir 20 ára aðskilnað, en faðir hans fór frá honum þegar hann var sex ára gamall.

Magnús Þór Ólafsson

-Mér til halds og traust verður Magnús Þór Ólafsson sem leikur á klassískan gítar. Við erum nú á Ísafirði en kveðjum bæinn í fyrramálið eftir vel heppnaða sýningu, en við hittum einnig fjöllistahóp vinnuskólans í bænum þar sem ég var með krakkana í smá æfingasmiðju í morgun, segir Sir Daily Snow. Ísafjörður er fimmti viðkomustaður leikhópsins á ferð hans í kringum landið og eru nú á leiðinni í Skagafjörð.

Sir Daily Snow

-Tilgangur þessa verkefnis er að kynna vinnu okkar en ég stunda nám við leiklistarskóla í Kaupmannahöfn og Magnús er á kandídatsári við Konunglega tónlistarskólann í sömu borg, segir Sir Daily Snow.

Pabbi er dáinn hefst kl. 20 í Húsi frítímans, miðvikudaginn 25. júlí og er aðgangur ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum í hatt höfundar eftir sýninguna.

Fleiri fréttir