Pizzur til styrktar Stefáni Jökli

Veitingastaðurinn Ólafshús á Sauðárkróki ætlar að styrkja Stefán Jökul Jónsson í veikindabaráttu hans í dag, fimmtudaginn 8. nóvember. Þá mun allur ágóði af pizzasölu dagsins renna beint til Stefáns Jökuls og hans fjölskyldu.

Stefán Jökull í „Manstu gamla daga“ hópnum fyrir tveimur árum. Aftari röð f.v. Aðalsteinn Ísfjörð, Rögnvaldur Valbergs, Guðmundur Ragnars, Kristján Hansen og Jón Gíslason. Fremri röð f.v. Dagbjört Jóhannesd., Björn Björnsson og Stefán Jökull.

Stefán Jökull gekkst undir læknismeðferð í Bandaríkjunum á dögunum en eins og gefur að skilja geta slíkar ferðir geta verið kostnaðarsamar, auk tekjutapsins sem verður á meðan fólk er frá vinnu á meðan tekist er á við erfið og langvinn veikindi. Nógu erfitt er að fást við veikindin, þó fjárhagsáhyggjur bætist ekki við líka.

Allir eru því hvattir til að leggja sitt af mörkum til að styðja við bakið á Stefáni Jökli og fjölskyldu og panta sér pizzu í dag. Jafnvel eru vinnuveitendur hvattir að splæsa pizzu á starfsfólk sitt og um leið að styrkja gott málefni.

Þeir sem vilja geta einnig Stefán Jökul lagt inn beint á styrktarteikning hans: 0310-13-820581 og kennitalan 211078-5299.

Fleiri fréttir