Púttvöllurinn eins og nýr

Unglingar í Vinnuskóla Skagafjarðar hafa lokið við að taka í gegn púttvöllinn sunnan við Sundlaug Sauðárkróks en samkvæmt Árna Arnarsyni flokkstjóra er um sérverkefni að ræða.

Krakkarnir byrjuðu viðgerðirnar á miðvikudaginn fyrir viku en að sögn Árna var púttvöllurinn orðinn handónýtur. „Það var meira alvöru gras á honum en gervigras, mosi og viðbjóður,“ segir hann.

Þá voru teppin rifin af, brautin pússuð upp og máluð og ný teppi lögð í stað hinna gömlu. „Við viljum bara hvetja alla til að koma í golf og eiga gleðilegt sumar,“ segja þau.

Hægt er að fá kylfur gegn vægu tryggingagjaldi í afgreiðslu sundlaugarinnar, sem verður endurgreitt þegar kylfunum er skilað.

Fleiri fréttir