rabb-a-babb 11: Nína Rafns

Nafn: Nína Þóra Rafnsdóttir.
Árgangur:  1964.
Fjölskylduhagir: Maki Unnar Rafn Ingvarsson, tvær dætur 7 og 9 ára.
Starf / nám: Kennari við FNV á Sauðárkróki.
Bifreið: Galloper jeppi árgerð 98 að mig minnir.
Hestöfl: Hef ekki hugmynd en nóg til að ég komist það sem ég þarf.
Hvað er í deiglunni: Hafa mig í það að skrifa svo sem eina 12 bls. heimildaritgerð.

Hvernig hefurðu það? Jú, bara gott.
Hvernig nemandi varstu? Ágætur, þó heldur samviskusöm.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Man nú lítið eftir honum, jú ég man að hárgreiðslan tók óratíma og að ég var í upphlut af ömmu minni sem var svo fast reirður á mig að það leið yfir mig í myndatökunni og skýrir hið föla útlit mitt á myndunum.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Eitthvað sem tengdist störfum á erlendri grundu s.s. leiðsögumaður eða starfa í sendiráði erlendis.
Hvað hræðistu mest? Geitunga.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða besta)? Ég man það nú bara ekki, ætli það hafi ekki bara verið einhver sem var oft spiluð í óskalögum unglinga á fimmtudagskvöldum.
Hvaða lag ertu líklegust til að syngja í Kareókí? Ég held ég hlífi nú áheyrendum við því að hlusta á mig syngja í Kareókí, því ég er laglaus.
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? JAG og Sixty Minutes.
Besta bíómyndin? Man það ekki, hef ekki séð neina lengi.
Bruce Willis eða George Clooney / Angelina Jolie eða Gwyneth Paltrow? George Clooney að sjálfsögðu.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossamiðann? Eitthvað gómsætt og girnilegt.
Hvað er í morgunmatinn? Oftast súrmjólk, Cherioos og brauð. Einu sinni var það hafragrautur en þeir tímar eru liðnir.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? Tommi og Jenni.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Uppvaskið og myndakökurnar fyrir jólin, er að ná pönnukökunum.
Hver er uppáhalds bókin þín? Kennslubókin í jarðfræði um þessar mundir en hún fer ekki af náttborðinu.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... Til Dublinar eða Norður-Írlands í góðra vina hópi.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Þörf mín til að tjá mig munnlega.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Leti og þegar fólk er roggið með sig.
Enski boltinn - hvaða lið og af  hverju? Horfi nú ekki mikið á fótbolta en ætli það sé ekki lið Chelsea.
Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Enginn sérstakur.
Heim í Búðardal eða Diskó Friskó? Heim í Búðardal.
Hver var mikilvægasta persóna 20. aldarinnar að þínu mati? Ætli það sé ekki Bríet Bjarnhéðinsdóttir af íslenskum persónum fyrir að vekja athygli á högum og réttindum kvenna.
Hvað er best í heimi? Kvöldstund með góðum vinum, mat, drykk og ræða heimspólitíkina og hlægja svolítið. Einnig að vera úti í náttúrunni á fallegu sumarkvöldi.

Fleiri fréttir