rabb-a-babb 6: Ómar Bragi
Nafn: Ómar Bragi Stefánsson.
Árgangur: 1957.
Fjölskylduhagir: Giftur Maríu Björk Ingvadóttur og við eigum þrjú börn: Stefán Arnar, Ingva Hrannar og Ásthildi.
Starf: Framkvæmdastjóri Landsmóts UMFÍ 2004
.
Bifreið: Subaru Legacy
.
Hestöfl: Flestir segja þau of mörg fyrir mig.
Hvað er í deiglunni: Landsmót og aftur Landsmót
Hvernig hefurðu það? Jú svona ágætt en er orðinn töluvert stressaður og sef orðið ansi lítið.
Hvernig nemandi varstu? Líklega svona sæmilegur, mátti helst ekki vera að því að læra mikið, það var alltaf svo mikið að gera í einhverju örðu.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Ég var draghaltur þennan dag enda búinn að vera í gipsi allan veturinn vegna fótbrots um haustið og svo aftur á Þorláksmessu, já tvö fótbrot !
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Vinna við íþróttir, líklegast verða atvinnumaður í fótbolta eins og Maggi Valda.
Hvað hræðistu mest? Í augnablikinu að það verði rigning og norðanátt á Landsmótinu.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða besta)? Það var sjálfsagt einhver plata með Bítlunum geri ég ráð fyrir.
Hvaða lag ertu líklegastur til að syngja í Kareókí? Landsmótslagið 2004
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? Enska boltanum og öllum íþróttum, ég get þó alveg litið undan ef það eru leikir með Arsenal og Liverpool.
Besta bíómyndin? Ég er svona alæta á bíómyndir og finnst alltaf sú nýjasta best.
Bruce Willis eða George Clooney / Angelina Jolie eða Gwyneth Paltrow? Eigum við ekki að segja Bruce og Angelina...
Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossamiðann? Alger óþarfi.
Hvað er í morgunmatinn? Yoghurt og eitthvað svoleiðis.
Uppáhalds málsháttur? Þessi síðasti.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? Simpson er ágætur.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Naut að hætti húsbóndans, enda finnst mér fátt skemmtilegra en að elda mat og borða hann svo.
Hver er uppáhalds bókin þín? Ætli það sé ekki íslenska knattspyrnan eða mótaskrá KSÍ.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu... til Spánar þar sem vildi helst verða svona 6 mánuði á ári.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Óþolinmæði.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óstundvísi.
Enski boltinn - hvaða lið og af hverju? Manchester United að sjálfsögðu. Það er sjálfsagt þessi saga í kringum liðið enda hef ég haldið með því í 40 ár.
Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Ætli það séu ekki synir mínir tveir og svo leikmenn Manchester United.
Heim í Búðardal eða Diskó Friskó? Diskóið að sjálfsögðu.
Hver var mikilvægasta persóna 20. aldarinnar að þínu mati? Ætli það hafi ekki verið foreldrar mínir.
Ef þú ættir að dvelja aleinn á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Börnin mín þrjú og reyndi svo að semja um að fá Maríu um helgar.
Hvað grein á Landsmótinu myndi henta þér best? Ég hef trú á því að ég næði lengst í knattspyrnunni.
Hvaða hringing er í gemsanum þínum? Gamli góði heimilissíminn frá því gamladaga.
Hvað sagði Tarzan þegar hann sá fílana koma hlaupandi yfir hæðina? Ætla allir á Landsmótið?!