Ráðherra kynnir sér Vinaverkefnið

Fyrir um ári síðan hlaut Vinaverkefnið í Skagafirði Foreldraverðlaun Heimilis og skóla fyrir það ár en verkefnið er samstarfsverkefni leik-, grunn- og framhaldsskóla í Skagafirði, frístundadeildar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, íþróttahreyfingarinnar og foreldra í Skagafirði. Að sögn Herdísar Sæmundardóttur fræðslustjóra Svf. Skagafjarðar hefur verkefnið gengið gríðarlega vel.

Í morgun, einu ári síðar, komu þau Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og  Ketill B. Magnússon, formaður Heimilis og skóla ásamt fríðu föruneyti á Sauðárkrók til að kynna sér verkefnið og hvernig til hefur tekist með það. Hófst heimsóknin á því að hlýða á og sjá fjölmörg atriði sem flutt voru af nemendum Árskóla en síðan var haldið í Hús frítímans þar sem snæddur var matur og verkefnið kynnt ítarlega fyrir gestunum ásamt öðrum verkefnum sem unnið er að í skólunum.

Hér fyrir neðan eru myndir frá athöfninni í íþróttahúsinu.

.

Fleiri fréttir