Rætt við Norlandair um flug á Krókinn

Heimamenn í Skagafirði eiga nú í viðræðum við flugfélagið Norlandair á Akureyri, áður Flugfélag Norðurlands, um að taka að sér áætlunarflug milli Sauðárkróks og Reykjavíkur. Þetta kemur fram á mbl.is í dag.

Eins og allir vita lagðist áætlunarflug af  til Sauðárkróks um áramótin en ríkisvaldið var tilbúið að leggja fram fjármuni sem talið var að vantaði upp á til að flugfélagið Ernir héldu fluginu áfram. Það tókst hins vegar ekki að finna flöt á því máli þar sem flugfélagið taldi sig vanta mun meira fjármagn en í fyrstu var haldið fram.

Unnið hefur verið að því að koma fluginu aftur í gang og segir mbl.is frá því að Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðaráðs Skagafjarðar, hafi átt fund í gær með forsvarsmönnum Norlandair og segir þær viðræður hafa verið jákvæðar.

Frétt mbl.is

Fleiri fréttir