Rangt netfang vegna kappróðurs á Sjávarsælu

Sjávarsæla 2012 verður haldin með pompi og prakt á morgun 2. júní á Sauðárkróki og margt í boði. Þau leiðu mistök urðu að auglýst var rangt netfang vegna kappróðursins en þeir sem áhuga hafa geta skráð sig á rétt netfang sjomannadagur2012@gmail.com.

Á dagskránni verður:

  • Skemmtisigling kl. 10:30
  • Kaffisala Slysavarnadeildar Skagfirðingasveitar í Verinu frá kl. 12 – 16
  • Skemmtidagskrá við Kjarnann kl 13:00
  • Kappróður, kassaklifur, hoppukastalar og fiskasýning og grillaðar verða pylsur í boði Skagfirðingabúðar.
  • Þeir krakkar sem vilja taka þátt í skemmtiatriðum er bent á að koma í viðeigandi klæðnaði.

Um kvöldið verður slegin upp veisla í Íþróttahúsinu þar sem boðið verður upp á fjölbreytt hlaðborð með forréttum, aðalréttum og eftirréttum og munu þeir gárungar Auðunn Blöndal og Steindi Jr. fara með veislustjórn og gamanmál. Á eftir mun hljómsveitin Spútnik leika fyrir dansi en hann verður opinn almenningi frá miðnætti.

Fleiri fréttir