Rauðar hitatölur í kortunum næstu vikuna

Veðurkortið á hádegi á mánudaginn ef spár ganga eftir. SKJÁSKOT AF ELDRI.VEDUR.IS
Veðurkortið á hádegi á mánudaginn ef spár ganga eftir. SKJÁSKOT AF ELDRI.VEDUR.IS

Það er spáð hlýindum næstu viku og í raun engar frosttölur að finna fyrr en næstkomandi laugardag og það er ekki von á þeim fyrr en seinni partinn. Næstu daga er reiknað með ansi stöðugum hita á bilinu 4-5 gráður og sunnanátt. Gul veðurviðvörun er víða á landinu á morgun, sunnudag, en þó ekki hér á Norðurlandi vestra.

Það er einnig útlit fyrir að Norðurland vestra sleppi að mestu við úrkomu út vikuna á meðan þau fyrir sunnan fá dágóðan skammt af vætu en hún virðist ekki ætla að ná yfir hálendið nema þá mögulega á fimmtudag.

Reyndar, svo öllu sé til haga haldið, þá má reikna með úrkomu í kvöld og nótt og þá ýmist snjókomu, slyddu eða regni.

Suðlægar áttir verða ríkjandi út vikuna en spáin fyrir kvöldið og morgundaginn er á þessa leið: Suðaustlæg átt, 3-10 m/s, skýjað og frost 0 til 5 stig, 8-15 og rigning eða slydda í kvöld og hlýnar. Suðaustan 13-20 og lítilsháttar rigning á morgun, en lægir heldur vestantil annað kvöld. Hiti 3 til 10 stig.

Þá má geta þess að nú á laugardagskvöldi eru allir vegir á Norðurlandi vestra færir sem eiga að vera færir. Rétt er þó að benda á að á nær öllum vegum er hálka eða hálkublettir og því vissara að fara varlega.

Fleiri fréttir