Reiðnámskeið fyrir almenning
Reiðkennarabraut Háskólans á Hólum heldur reiðnámskeið fyrir hinn almenna hestamann (16 ára og eldri) á Hólum, dagana 11. - 14. apríl nk. Það eru nemendur á lokaári til BS í reiðmennsku og reiðkennslu sem hafa umsjón með með námskeiðinu.
Áherslan verður á ásetu og stjórnun, samspil knapa og hests, sem og að bæta jafnvægi á gangtegundum.
Á heimasíðu Hólaskóla segir að gert sé ráð fyrir að þátttakendur mæti með taminn hest og búnað. Unnt er að fá stíu og fóður fyrir hestinn meðan á námskeiðinu stendur og er verðið kr. 1500 á sólarhring. Að öðru leyti er námskeiðið þátttakendum að kostnaðarlausu. Hægt verður að kaupa hádegismat og kaffi á staðnum um helgina.
Dagskrá er eftirfarandi:
11. apríl, fimmtudagur kl. 17:00 - 21:00
12. apríl, föstudagur kl. 17:00 - 21:00
13. apríl, laugardagur kl. 9:00 - 17:00
14. apríl, sunnudagur kl. 9:00 - 16:00
Skráning og nánari upplýsingar:
Mánudaginn 8. apríl og þriðjudaginn 9. apríl, kl. 19:00-22:00, í símum 847 2045 (Bergrún) og 866 3508 (Bjarni).