Rennibrautir komnar á Krókinn

Hálfnað er verk þá hafið er. MYND AF SKAGAFJÖRÐUR.IS
Hálfnað er verk þá hafið er. MYND AF SKAGAFJÖRÐUR.IS

Það eru sannarlega jákvæðar fréttur að vinna við uppsetningu rennibrauta við Sundlaug Sauðárkróks er hafin. Í tilkynningu á vef Skagafjarðar segir að vegna vinnu við uppsetninguna geti komið til þess að loka þurfi nýja sundlaugarkarinu á vinnutíma en komi til þess verður það auglýst sérstaklega.

Haft verður í huga að karið verði að jafnaði opnað að nýju kl. 18, þá daga þegar grípa þarf til lokana.

Það er búið að bíða í dágóðan tíma eftir að rennibrautirnar létu sjá sig en til stóð að þær yrðu komnar upp í júní í sumar. Þegar ljóst var að það næðist ekki var stefnan sú að rennibrautirnar yrðu komnar á sinn stað áður en Unglingalandsmótið hæfist um verslunarmannahelgina en svo brást það. Ástæðan fyrir þessum frestunum mun vera að stríðsbrölt við Persaflóann hafi sett eitt og annað í uppnám.

En nú eru rennibrautirnar komnar á Krókinn og styttist í að framkvæmdir við Sundlaug Sauðárkróks klárist og laugin öðlist sannkallað aðdráttarafl.

Fleiri fréttir