Rikka og Mæja elda á Sólvík
Laugardagskvöldið 21. júlí verður haldið kvöldmatarhlaðborð í Sólvík á Hofsósi þar sem gestakokkar kvöldsins verða tvær fegurðardísir, Rikka og Mæja á Molastöðum. Samkvæmt tilkynningu frá Sólvík ætlar Mæja að elda sína víðfrægu humarsúpu í forrétt og Rikka töfrar fram aðal- og eftirrétt af alkunnri snilld.
Stórsöngvarinn Matti Matt mun mæta á svæðið ásamt trommuleikaranum Benna og ætla þeir að halda uppi miklu stuði fram eftir nóttu. Fyrir þá sem ekki vilja láta þessa skemmtilegu kvöldstund fram hjá sér er hægt er að panta borð í síma 453-7930.