Rithöfundar lesa úr bókum sínum

Héraðsbókasafn Skagfirðinga stendur fyrir upplestri úr nýútkomnum bókum. Þá munu rithöfundarnir Einar Kárason, Ragnar Jónasson og Vilborg Davíðsdóttir koma og lesa úr bókum sínum í Kakalaskála Sigurðar Hansen í Kringlumýri, laugardaginn 1. desember kl. 13.

Einar les úr bók sinni skáld, sem er lokabindið í Sturlungasögu hans. Ragnar les úr spennusögu sem heitir Rof og gerist í Héðinsfirði. Bók Vilborgar nefnist Vígroði og er framhald bókarinnar um Auði djúpúðgu.

„Allir velkomnir,“ segir í auglýsingu í Sjónhorninu.

Fleiri fréttir