Roburt Sallie til Tindastóls

Tindastóll ætlar að styrkja lið sitt í Dominosdeildinni þar sem bandaríski bakvörðurinn Roburt Sallie verður sóttur á Keflavíkurflugvöll í fyrramálið. Að sögn Þrastar Jónssonar formanns körfuboltadeildarinnar hefur engum verið sagt upp en staðan tekin síðar og sjá hvernig málin munu þróast.

Ljóst er að Drew Gibson er tæpur vegna meiðsla en hann átti stórgóðan leik í gærkvöldi þrátt fyrir að vera nánast á annarri löppinni. Tindastóll berst nú fyrir lífi sínu í deildinni en með sigrinum í gær komust þeir upp úr botnsætinu.

Bárður Eyþórsson þjálfari Tindastóls var að sjálfsögðu mjög ánægður með leikinn í gær og þá sérstaklega varnarleikinn.

-Mér fannst þetta vera fyrst og fremst liðssigur. Menn voru staðráðnir í því að gera betur heldur en í tveim fyrstu leikjunum eftir áramót og það sem hefur skeð er fyrst og fremst hugarfarsleg breyting.

Bárður segir að þeir hafi ekki verið sáttir við sjálfa sig í Skallagrímsleiknum en þeir hafa verið að vinna í og undirbúa sig betur fyrir framhaldið.

Hinn ungi og efnilegi Pétur Rúnar Birgisson átti mjög góðan leik í gær og aðspurður um framtíðarhorfur segir Bárður að hann sé klárlega einn af framtíðar mönnum félagsins, ásamt nokkrum öðrum sem eru á leið eða komnir í meistaraflokkinn.

Fleiri fréttir