Rödd þjóðarinnar í Miðgarði á sunnudaginn
Halldór Gunnar Pálsson kórstjóri Fjallabræðra vinnur nú að stóru verkefni þar sem hann fer um landið og tekur upp rödd þjóðarinnar sem mun hljóma í lokakafla lags sem hann hefur verið að vinna fyrir Fjallabræður. Að ferðalaginu loknu verður öllum upptökum blandað saman til að mynda einn risastóran kór - rödd þjóðarinnar.
Önfirðingurinn Halldór Gunnar, sem gaman er að upplýsa hér að er sonur Magneu húsfreyju á Varmalæk í Skagafirði, ætlar að taka upp raddirnar í Miðgarði sunnudaginn 22. apríl kl. 16 og hvetur hann sem flesta til þess að taka þátt í gleðinni. Meðal annars er búið að stefna öllum kórum fjarðarins allt frá grunnskólabörnum til ellilífeyrisþega á staðinn.
Stefnt er að því að ná 30.000 manns til að syngja inn á lagið og má búast við því að stór hópur mæti í Miðgarð til að taka þátt. Á heimasíðu verkefnisins www.thjodlag.is segir að á hverjum stað sem verður heimsóttur verður opið hús þar sem upptökur fara fram. Kafli lagsins er einfaldur og fljótlærður og mun það ekki taka langan tíma að kenna sönglínuna og taka hana upp og allir eru velkomnir að taka þátt.
Þá er hægt að fylgjast með verkefninu á Facbook undir Þjóðlag.