Rökkurganga í Glaumbæ
Starfsfólk Byggðasafns Skagfirðinga býður gestum að rölta með sér um gamla bæinn í Glaumbæ næstu tvo sunnudaga á aðventunni, á morgun 9. des. og 16. des. Þá verður hugað að jólum og jólahaldi á þeim tíma þegar bærinn var í notkun.
Á heimasíðu Byggðasafnsins segir að nú verður athyglinni beint að fígúrum sem fólki leiddist á þessum árstíma og sumir voru hræddir við, eins og jólasveinum, jólaketti, álfum og öðrum furðuverum.Gengið verður í bæinn stundvíslega kl. 16 og er gott að hafa vasaljós meðferðis í gönguna.
Einnig er tekið fram að búið er að skreyta Áshúsið hátt og lágt og hefur það sjaldan verið jólalegra. Þar verður opið sömu helgar, laugardag og sunnudag, frá 12 til 18.
„Þar er heitt súkkulaði, kaffi, eða te á könnum og gómsætar veitingar. Í hádeginu sunnudaginn 9. desember er steik og þann 16. er kjötsúpa að hætti hússins,“ segir loks á heimasíðunni.