Ronja ræningjadóttir á FeykirTV
Í gær fór fram frumsýning á leikriti 10. bekkjar Árskóla á Sauðárkróki en flutt var hin sígilda saga um Ronju Ræningjadóttur eftir Astrid Lindgren, Annina Paasonen annaðist leikgerð. Þó að frumsýnt hafi verið í gær, þá eru enn fjórar sýningar eftir. Feykir-TV fór á forsýningu og kíkti á stemninguna baksviðs ásamt því að ræða við nokkra leikara og leikstjórann Guðbrand Ægi.
Miðapantanir fara fram á milli kl. 14-20 í síma 453 5216 en miðaverð fyrir 5 ára og yngri er 500 kr., grunnskólanemendur 1000 kr. og fullorðnir 1500 kr. Ekki er tekið við greiðslukortum.
- Leiksýningarnar verða sem hér segir:
- Miðvikudagur 21. mars kl. 17 og kl. 20
- Fimmtudagur 22. mars kl. 17 og kl. 20
http://www.youtube.com/watch?v=ASOfpLIIwvo