Rótgrónar hljómsveitir áberandi á Gærunni 2012
Nú styttist í augnablikið sem margir bíða spenntir eftir - tónlistarhátíðin Gæran á Sauðárkróki fer fram í næstu viku, dagana 23. – 25. ágúst. Á hljómsveitarlistanum má sjá fjölmarga flotta tónlistarmenn og hljómsveitir og útlit fyrir sannkallaða tónlistarveislu.
Í ár munu 20 hljómsveitir stíga á svið á tónlistarhátíðinni, auk þeirra tónlistarmanna sem koma fram á sólóistakvöldinu sem haldið verður á Mælifelli fimmtudagskvöldið.
Skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Gærunnar eru í viðtali í nýjasta tölublaði Feyki og ríkir mikil spenna í herbúðum Gæruliða fyrir hátíðinni.
„Á hljómsveitarlistanum þetta árið eru nokkrar rótgrónar hljómsveitir áberandi, s.s. Dúkkulísurnar, Gildran, Skytturnar og Geirmundur verður að sjálfsögðu með á ný. Svo er Gæran orðin alþjóðleg tónlistarhátíð þar sem Eivør Pálsdóttir er á meðal þeirra sem stíga á svið á Gærunni,“ segir Stefán Friðrik Friðriksson, einn skipuleggjenda í Feykisviðtali.
Hér eru þær hljómsveitir sem koma fram á Gærunni 2012:
GÆRAN sólóistakveld fimmtudag kl 20:00-24:00
- Dana Ýr
- Sóla og Sunna
- Sveinn Rúnar
- Þorgerður Jóhanna
- Fúsi Ben og Vordísin
- Myrra Rós
- Gillon
- Joe Dúbíus
- InkCity
GÆRAN föstudagskvöld kl 19:00-24:00
- Rock to the moon
- Brother Grass
- Sverrir Bergmann og Munaðarleysingjarnir
- Eldar
- Gildran
- Hide your kids
- Eivör Pálsdóttir
- Sing for me Sandra
- Dimma
- Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
GÆRAN laugardagskvöld kl 19:00-24:00
- Art Factory Party
- Nóra
- Bee Bee and the Bluebirds
- The Wicked Stragners
- Dúkkulísurnar
- Lockerbie
- Death by toaster
- Skúli Mennski
- Skytturnar
- Contalgen Funeral