Rúnar Már bestur í Pepsí-deildinni
Sauðkrækingurinn og Valsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson var valinn besti leikmaður ársins í Pepsi-deild karla hjá Fréttablaðinu en hann háði harða baráttu við FH-inginn Atla Guðnason. Rúnar Már fékk 6,86 í meðaleinkunn í leikjunum 22, en Atli 6,77.
Á Vísir.is segir að mikilvægi Rúnars Más sjáist ekki síst í níu sigurleikjum Valsmanna í sumar þar sem hann kom að 15 af 25 mörkum liðsins, eða 60 prósentum markanna. Rúnar skoraði 5 mörk, gaf 6 stoðsendingar og 4 hjálparsendingar í sigrunum níu, var fjórum sinnum valinn maður leiksins og var með 7,33 í meðaleinkunn. Margir eru á því að Valsmenn hefðu jafnvel fallið í sumar ef ekki hefði verið fyrir frammistöðu Rúnars.
Sjá nánar á Vísir.is