Rýming enn í gildi
Þrjú hús í Kristjánsklauf, Kambastígur 4, 6 og 8 á Sauðárkróki voru rýmd vegna snjóflóðahættu í gær og að sögn Vernharðs Guðnasonar hjá Almannavörnum Skagafjarðar er rýmingin enn í gildi. Miklar hengjur hafa myndast á Nafarbrúnum fyrir ofan húsin og er hluti þeirra fallinn.
„Von er á sérfræðingi frá Veðurstofu Íslands um hádegisbilið í dag og mun hann meta aðstæður. Í samráði við hann verða næstu skref ákveðin en ljóst er að íbúar mega ekki fara heim fyrr en gengið hefur verið úr skugga um að öllu sé óhætt,“ sagði Vernharð í samtali við Feyki.
Mikill snjór er nú á Sauðárkróki og verið er að moka götur bæjarins, þó eru margar götur enn ómokaðar og ljóst er að mikið starf er framundan hjá snjómokstursmönnum.