Rýmingu aflétt á einu húsi í Varmahlíð
Á fundi almannavarnanefndar Skagafjarðar sem hófst kl. 16:00 í dag var tekin ákvörðun um afléttingu rýmingar á húsi við Norðurbrún 7 í Varmahlíð frá og með kl. 21 í kvöld. Rýming er óbreytt fyrir Laugaveg 15 og 17 og Laugahlíð.
Áfram hefur verið unnið á vettvangi í dag við rannsóknir á orsökum aurskriðunnar og aðgerðum til að fyrirbyggja frekara tjón. Þeirri vinnu og vinnu við hreinsun og uppbyggingu verður haldið áfram næstu daga.
Almannavarnanefnd ítrekar beiðni til almennings um að virða lokanir þar sem þær eru í gildi.
Almannavarnanefnd mun funda kl. 16 á morgun og tilkynna um frekari ákvarðanir í kjölfar þess fundar.
/Fréttatilkynning