Sætið í 1. deild nánast gulltryggt eftir góðan sigur á Leikni
Tindastóll fékk Leikni Reykjavík í heimsókn í dag á Sauðárkróksvöll og leikurinn báðum liðum afar mikilvægur þar sem bæði lið keppa að því að tryggja sæti sitt í 1. deild. Tindastólsmenn höfðu sigur en Steven Beattie gerð bæði mörk liðsins í 2-1 sigri og þar með skutust Stólarnir upp í áttunda sæti deildarinnar.
Talsverður sunnanstrekkingar var á meðan á leik stóð og gerði báðum liðum nokkuð erfitt fyrir í spilamennskunni. Gestirnir, sem voru 5 stigum á eftir Stólunum og með bakið upp við vegg, voru frískari fyrstu mínúturnar en þrátt fyrir að fá nokkur sæmileg færi þá fengu þeir engin dauðafæri. Tindastóll komst betur inn í leikinn þegar leið á hálfleikinn og tókst ágætlega að halda boltanum niðri og spila honum upp í hornin á móti vindinum. Þannig komust Beattie og Max í ágæt færi og það var einmitt Steven Beattie sem kom Tindastólsmönnum yfir á 30. mínútu eftir að Max komst upp að endamörkum og sendi fastan bolta fyrir markið þar sem Beattie kom á ferðinni og hamraði boltann í markið. Vel gert.
Fátt markvert gerðist fram að leikhléi nema hvað Árni Ödda meiddist og nafni hans Adolfsson kom inn í lið Tindastóls. Willum Þór virðist hafa náð að pumpa krafti og baráttu í sína menn í hléi því þeir voru ekki lengi að ógna Stólunum í upphafi síðari hálfleiks. Eftir fjögurra mínútna leik fengu þeir síðan hornspyrnu sem virtist misheppnuð en boltinn skoppaði inn í markteig án þess að varnarmenn Tindastóls kæmu boltanum í burtu og féll síðan fyrir einn leikmanna Leiknis sem skóflaði boltanum í markið. Ansi klaufalegt. Tindastólsmenn náðu eftir þetta ágætum tökum á leiknum og fengu nokkur hálffæri en vindurinn gerði mönnum nokkuð erfitt fyrir. Um miðjan síðari hálfleik fengu Stólarnir aukaspyrnu rétt inni á vallarhelmingi gestanna Nafamegin. Árni Einar sendi frábæra sendingu inn á teig þar sem Steven Beattie kom á siglingunni og þrumaði boltanum viðstöðulaust í þverslá og inn. Glæsilegt mark.
Stólarnir reyndu eftir þetta að þétta raðirnar og Leiknismenn færðu sig framar á völlinn en sem fyrr gekk þeim illa að skapa sér færi. Seb var öruggur í markinu og skyndisóknir Stólanna voru hættulegri en sóknir gestanna. Lokatölur 2-1.
Það var augljóst að það var mikið undir hjá báðum liðum og Stólarnir hafa oft spilað betur en í dag. Úrslitin voru það sem máli skipti en Stólarnir eiga þrjá erfiða leiki eftir í deildinni og geta nú spilað þá nokkuð pressulausir. Eftir sigurinn í dag eru Stólarnir í 7.-8. sæti, með jafnmörg stig og Víkingur R. (hver hefði trúað því fyrir tímabilið) og skutust upp fyrir BÍ/Bolungarvík. Næst heimsækja Stólarnir Hött á Egilsstöðum sem hafa náð góðum úrslitum að undanförnu. Neðstu sætin í 1. deild skipa ÍR og Leiknir og er staða ÍR þannig að liðið verður að vinna alla þrjá leiki sína til að eiga séns á að halda sér í deildinni og svipaða sögu er að segja af Leikni. Átta stig skilja að lið Tindastóls (24 stig) og Leiknis (16 stig).