Sætir sigrar á Sauðárkróksvelli
Fyrstu deildar lið Tindastóls og þriðju deildar lið Drangeyjar áttu góða leiki í dag og í gær en bæði liðin sigruðu andstæðinga sína í leikjunum.
Tindastóll lagði Víking R. af velli með þremur mörkum gegn einu. Það voru Fannar Freyr Gíslason, Theodore Eugene Furness og Ben J Everson sem skoruðu fyrir lið Tindastóls en Evan Schwartz skoraði fyrir Víking.
Eitt rautt spjald fór á loft í leiknum en það var Reynir Leósson, leikmaður Víkings, sem var vísað af velli. Áður hafði hann fengið áminningu en einnig fengu þrír leikmenn Tindastóls áminningu, þeir Dominic L Furness, Ben J Everson og Theodore Eugene Furness.
„Mér fannst jafnræði með liðunum allan leikinn,“ sagði Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Tindastóls, í samtali við Fótbolta.net. „Við vildum þetta meira. Menn hlupu meira hjá okkur.“ „Staðan á liðinu er góð. Margir hafa spilað og margir fengið reynslu. Við settum okkur ákveðið markmið fyrir þessa fyrstu sex leiki og náðum því,“ sagði Halldór. Hér má sjá viðtalið við hann í heild sinni. Tindastóll er nú í 7. sæti í deildinni með 7 stig.
Drangey gjörsigraði lið Skautafélags Reykjavíkur í gærkvöldi 4-0. Þeir leikmenn Drangeyjar sem settu boltann í netið voru þeir Óskar Smári Haraldsson, Guðni Þór Einarsson, Hilmar Þór Kárason og Ingvi Rafn Ingvarsson. Tveir fengu áminningu í leiknum, þeir Aron Ellert Þorsteinsson og Hákon Andri Víkingsson, báðir leikmenn SR. Drangey er nú í 3. sæti í B-riðli með 7. stig.