Sævar Birgisson og María Guðmundsdóttir skíðafólk Íslands
Skíðasamband Íslands hefur útnefnt Skagfirðinginn Sævar Birgisson og Maríu Guðmundsdóttur frá Akureyri skíðamann og –konu ársins 2012. María Guðmundsdóttir hefur verið ein fremsta skíðakona landsins í alpagreinum undanfarin ár og er Íslandsmeistari í svigi. Sævar hefur hins vegar verið í fremstu röð skíðagöngumanna landsins mörg undanfarin ár og hefur á árinu tekið stöðugum framförum í keppni á erlendri grundu og er mjög einbeittur í að komast á Ólympíuleikana í Sochi í Rússlandi 2014.
Sævar Birgisson í hörku keppni.
Í Feyki sem kom út í gær svarar Sævar spurningum í Íþróttagarpinum og þar kemur fram að skemmtilegasta augnablikið hjá honum hafi verið þegar hann komst loksins undir lágmarkið fyrir Ólympíuleikanna Idre í Svíþjóð fyrir skemmstu. „Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að keppa á Ólympíuleikunum og ég var búinn að stefna að því svo lengi. Einnig var mjög gaman þegar ég og pabbi unnum tvöfalt á Skíðamóti Íslands 2006, sem og þegar ég vann 10km gönguna á Skíðamóti Íslands 2011 eftir að hafa tekið hvíld frá íþróttinni í góðan tíma,“ segir Sævar í Feyki.
Sín fyrstu skíðaskref tók Sævar á íþróttavellinum á Sauðárkróki 5 ára gamall. Hann keppti á sínu fyrsta móti á Siglufirði 8 ára gamall og tók sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í Tindastóli 17 ára gamall. 17 ára fluttist Sævar svo til Lillehammer í Noregi, og gekk í skíðamenntaskóla, þar sem segja má að hann hafi hellt sér algjörlega yfir í skíðagönguna.
Nánar má lesa um Sævar í nýjasta Feyki.
HÉR er hægt að lesa umsögn um þau Maríu og Sævar frá SKÍ.