Sævar Einars með málverkasýningu í Gúttó

Í hinu sögufræga húsi, Gúttó á Sauðárkróki, hefur myndlistin fengið að njóta sín þann stutta tíma sem listunnendur í Skagafirði hafa haft það til umráða. Síðastliðinn mánudag opnaði Sævar Einarsson sýningu á verkum sínum þar í tilefni af sjötugs afmæli sínu og stendur hún til sunnudagsins 15. apríl.

Á sýningarskrá stendur að Sævar sé fæddur í Reykjavík en flutti á Sauðárkrók 6 ára gamall og hefur búið þar síðan. Hann teiknaði og málaði þó nokkuð sem barn og unglingur en síðan lá leiðin á sjóinn og hefur Sævar starfað sem trillukarl lengst af ævinnar. Hann snerti ekki aftur á penslinum fyrr en fyrir 4 árum síðan en hefur verið afkastamikill málari þau ár.

Myndirnar eru einkar vel gerðar og munu sýningargestir eflaust þekkja flestar þær aðstæður sem sýndar eru á striganum. Óhætt er að mæla með því fyrir alla að kíkja á sýningu Sævars.

Fleiri fréttir