Safnað fyrir Gunnar

Vinir Gunnars Heiðars Bjarnasonar hafa stofnað styrktarreikning fyrir hann og fjölskyldu hans en hann greindist með sykursýki þegar hann var 5 ára gamall. Gunnar Heiðar er fæddur árið 1985 og býr á Sólvöllum í Skagafirði.

Árið 2009 fór Gunnar að missa sjón og fór í kjölfarið í 11 skurðaðgerðir á augum. Líkaminn hafnaði aðgerðunum vegna sjálfsofnæmis sem varð til þess að í febrúar 2011 var Gunnar orðinn alveg blindur. Í kjölfarið fór nýrnastarfsemin að skerðast og er Gunnar nú á biðlista fyrir nýrna- og brisígræðslu í Svíþjóð. Gunnar þarf að fara í blóðskilun annan hvern dag sem einungis er hægt að framkvæma í Reykjavík. Þar af leiðandi þarf hann að dvelja langdvölum á sjúkrahúsi og halda til í Reykjavík ásamt móður sinni sem er hans stoð og stytta. Þessu fylgir mikill kostnaður ásamt vinnuskerðingu fjölskyldunnar.

Þeir sem vilja leggja Gunnari og fjölskyldu hans lið geta lagt inn á reikning nr. 0310-13-300785, kt: 160785-3579.

 

Það voru bekkjasystur Gunnars þær Sara Katrín og Edda Hlíf sem hrintu söfnuninni af stað. „Hann var með okkur í bekk alla okkar grunnskólagöngu í Varmahlíð og því ákváðum við að stofna reikning til þess að hægt sé að styðja við bakið á fjölskyldunni í þessum erfiðleikum“.

Fleiri fréttir