Samningur um samnýtingu kennslukrafta

Opinberu háskólarnir hafa gert með sér samning sem miðar að aukinni samnýtingu kennslukrafta milli skólanna en þeir háskólar sem eru aðilar að samningnum eru Hólaskóli-Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli Íslands, Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri.

Á heimasíðu Hólaskóla kemur fram að í samningnum felst að föstum kennurum verður gert auðveldara að uppfylla starfsskyldur sínar á sviði kennslu við aðra háskóla en sinn eigin.

Tilgangur samningsins er að nýta betur mannauð opinberu háskólanna á sviði kennslu og að efla samstarf þeirra á milli. Þá er samningnum ætlað að stuðla að því að fjölga og viðhalda störfum á sérhæfðum fræðasviðum.

Fleiri fréttir