Sandfangarinn lengdur
Hafist var handa í síðustu viku við að lengja sandfangara við Sauðárkrókshöfn en það eru Norðurtak og Krókverks sem vinnur það verk. Sandfangarinn verður lengdur um 30 metra út í sjó en hann á að hefta sandurð í höfnina en um leið færist fjaran út og landrými eykst.
Að sögn Rögnvaldar Árnasonar hjá Norðurtak er stefnan sett á að klára verkið fyrir páska ef ekkert óvænt gerist. Efnið í garðinn er fengið annarsvegar úr námu við Veðramót í Skörðum og hinsvegar á Fagranesi á Reykjaströnd og hafa gárungarnir frægu þegar nefnt grðinn Fagranes.