Sauðárkrókskirkja 120 ára

Næstkomandi sunnudag verður þess minnst að 120 ár eru liðin frá því að Sauðarkrókskirkja var vígð en það var 18. desember árið 1892. Hátíðarmessa verður í kirkjunni af því tilefni og hefst hún klukkan 15:00. Sérstakur gestur verður Inge Lise Popp, afkomandi L.F. Popp kaupmanns sem var einn hvatamanna að byggingu kirkjunnar.

Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir Hólabiskup predikar en sr. Sigríður Gunnarsdóttir þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar annast messusöng og Björn Björnsson stiklar á stóru í sögu kirkjunnar. Að lokinni messu verður ný flóðlýsing á kirkjuna tendruð af I. L. Popp sem þykir vel við hæfi þar sem Popp kaupmaður gaf alla lýsingu í kirkjuna er hún var vígð en hún þótti eitt veglegasta veglegasta og best lýsta guðshús landsins á þeim tíma.

Kirkjugestum er svo boðið til kaffisamsætis í Félagsheimilinu Ljósheimum í boði Kvenfélags Skarðshrepps. Rútuferð verður frá kirkjunni fyrir þá sem vilja.

Fleiri fréttir