Seldu á annað hundrað pizzur
Í gær var haldinn styrktardagur á veitingastaðnum Ólafshúsi á Sauðárkróki þar sem allur ágóði af pizzasölu dagsins rann beint til Stefáns Jökuls og hans fjölskyldu, til að styðja við bakið á honum í veikindabaráttu hans. Að sögn Kristínar Magnúsdóttur annars eiganda veitingahússins voru gerðar vel á annað hundrað pizzur af öllum stærðum og gerðum.
Stefán Jökull í „Manstu gamla daga“ hópnum fyrir tveimur árum. Aftari röð f.v. Aðalsteinn Ísfjörð, Rögnvaldur Valbergs, Guðmundur Ragnars, Kristján Hansen og Jón Gíslason. Fremri röð f.v. Dagbjört Jóhannesd., Björn Björnsson og Stefán Jökull.
„Við fengum virkilega góð viðbrögð og fólk tók þátt í þessu að heilum hug og sýndi mikla þolinmæði þar sem biðin var orðin löng,“ sagði Kristín. Hún sagði framtakið hafi gengið vonum framar og skilaði þetta samvinnuverkefni þeirra og bæjarbúa Stefáni og fjölskyldu 320.000 kr., sem er óneitanlega glæsilegur árangur.
Aðspurð um hvernig hugmyndin af styrktardeginum hafi komið til svaraði hún að hugmyndin hafi svosem ekki verið nein skyndihugdetta hjá þeim Sigurpáli Aðalsteinssyni, eða Sigga Dodda, eins og hann er oftast kallaður.
„Við reynum að taka þátt í sem flestu í samfélaginu og erum alltaf að gefa eitthvað til félagasamtaka, íþrótta og fleira. Út frá spjalli um það kom þessi hugmynd um að nú langaði okkur að leggja eitthvað til sem gæti létt öðrum lífið og tókum ákvörðun um að kíla á þennan styrktardag,“ sagði Kristín og bætti við að gærdagurinn hafi verið upplagður þar sem það var afmælisdagur Sigga Dodda. „Alltaf gaman að halda öðruvísi afmælisveislu,“ sagði hún í lokin.
Þeir sem höfðu ekki tök á því að kaupa pizzu í gær en vilja styðja við bakið á Stefáni Jökli geta lagt inn beint á styrktarteikning hans: 0310-13-820581 og kennitalan 211078-5299.