Sérlega vel heppnuð leiksýning

Leiksýning um Ronju Ræningjadóttur hefur verið til sýningar í Bifröst í vikunni sem er að líða og fara síðustu tvær sýningarnar  fram í Bifröst í dag. Ein kl. 14 og hin kl. 16:30. Miðapantanir fara fram í síma 453 5216 á milli kl. 12 og 16:30.

Þegar blaðamaður Feykis fór á leiksýninguna í Bifröst var salurinn fullsetinn af börnum sem nutu sýningarinnar til hins ýtrasta. Krakkarnir ýmist hlógu eða iðuðu af eftirvæntingu eftir því hvernig sögunni vatt fram.

Leiksýningin er í uppfærslu 10. bekkjar Árskóla, undir leikstjórn Guðbrands Ægis Ásbjörnssonar og verður að teljast sérlega vel heppnuð. Leikarar stóðu sig með prýði og voru afar sannfærandi, leikmynd og búningar voru einnig mjög flottir og fagmannlega unnir. Allt small vel saman og greinilegt að allir sem að leikritinu komu skemmtu sér vel, ekki síður en gestirnir.

Fleiri fréttir