Sérsveit, skúrkar og vopn á Sauðárkróki

Þrír aðilar voru fyrir stundu handteknir á Sauðárkróki í tengslum við innbrot og þjófnað sem framin voru á og við Sauðárkrók í nótt. Brotist var inn í sundlaug staðarins og peningum stolið en einnig var brotist inn í aðstöðuhús Skotfélagsins Ósmanns sem staðsett er rétt utan staðarins.

Hjá Ósmanni hafði skotvopnum verið stolið og töluverðu magni af skotfærum og leitaði lögreglan því liðsinnis sérsveit ríkislögreglustjóra sem kom og aðstoðaði við handtökuna. Aðilarnir þrír, tveir karlmenn og ein kona, voru handsömuð fyrir utan verslun á Sauðárkróki og fundust í fórum þeirra fjórar byssur og skotfæri.

Karlmennirnir sem handteknir voru eru aðkomumenn og tengist annar handrukkaramálinu sem upp kom fyrir tveimur dögum en það gerir konan einnig en hún er búsett á Sauðárkróki.

Fleiri fréttir