Síðasti leikur 8. flokks stúlkna í körfu
Einn leikur er eftir í síðustu umferð Íslandsmóts í körfu hjá 8. flokki stúlkna í Tindastól en hann verður á móti liði Þórs frá Akureyri og fer fram í Síkinu nk. föstudag.
Leikurinn átti að fara fram í vetur en Þórsarar komust ekki til leiks vegna veðurs en ætla að koma á Krókinn og spila við Tindastólsliðið kl. 19 á föstudaginn.
„Tindastólsliðið hefur þegar tryggt sér sigur í riðlinum og skiptir þessi leikur því ekki miklu máli, en bara gaman að spila leik svona alveg í lok tímabilsins,“ segir á heimasíðu Tindastóls og um leið eru allir hvattir til að koma og sjá allra síðasta leik tímabilsins.