Síðsumarssýning kynbótahrossa 2012
Síðsumarssýning kynbótahrossa verður haldin á Vindheimamelum dagana 1.-3. ágúst í tengslum við Fákaflug. Komið er í gagnið nýtt skráningarkerfi en með tilkomu þess gefst knöpum og eigendum kostur á að skrá sín hross sjálfir inn á sýninguna ásamt því að borga fyrir hrossin í leiðinni.
Bæði er hægt að borga með korti eða millifæra inn á reikning en sé millifært þarf að senda kvittun á sah@bondi.is. Hrossið skráist ekki inn á sýninguna fyrr en gengið hefur verið frá greiðslu. Sjá nánar HÉR
Hefðbundin skráning fer fram dagana 23. - 25. júlí með því að senda tölvupóst á Steinunni Önnu á netfangið sah@bondi.is eða í síma 865-0945 milli 13:00 og 16:00 þessa þrjá daga.
Skráningargjald:
Fullnaðardómur: 18.500 kr
Byggingadómur: 13.500 kr
- Greiðist inn á: 1125-26-0710 kt: 580901-3010
- Skýring: Nafn á hrossi
- Síðasti greiðsludagur er mánudaginn 30. júlí.
Til að fá endurgreitt sýningargjald þarf að tilkynna forföll eigi síðan en degi fyrir sýningu.
Minnt er á DNA-sýni úr öllum stóðhestum og foreldrum þeirra. Blóðsýni og röntgenmyndir af stóðhestum fimm vetra og eldri.